Staðreyndir um vöruna:
Nú eru komnir á markaðinn ullarkoddar framleiddir á Íslandi. Þessir koddar eru framleiddir úr merinoull, sem hefur verið meðhöndluð þannig að hún hleypur ekki, (Feltstop®) mölvarin og sýklavarin (Ultrafresh, Antibacteria®).
Koddana má þvo á ullarprógrammi 30° best er að þurrka þá á grind.
Koddaverið er úr 100% burstaðri bómull (óbleiktri).
Ullin er í fjaðurmögnuðum litlum hnoðrum, sem gerir koddann loftmeiri.
Ullin er hlý í kulda en í hita er hún þægileg og þú finnur ekki fyrir raka.
Utan um ullina er ver úr 100% gæða jerseyi, á koddanum er rennilás, þannig að ef þér finnst koddinn of stífur getur þú tekið úr honum eða bætt í hann ef hann er of mjúkur, eftir þörfum hvers og eins.
Koddarnir eru framleiddir í stærðunum 30x40 cm. ferða/barnakoddi og 40x60 cm.
Ullarkoddar eru mjög vinsælir og ending þeirra er sögð a.m.k.15-20 ár.
Ullin bráðnar ekki við bruna og er því öruggari í notkun en gerviefni.





